




Flókagata 12
105 Reykjavík
Björt og vel skipulögð íbúð á efstu hæð í Norðurmýri.
Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og gang. Gluggar í íbúðinni vísa í þrjár áttir sem gera hana einstaklega bjarta. Í stofu, sem nýtist bæði sem stofa og borðstofa, er stór horngluggi. Eldhús er nýlega uppgert. Þar er gott skápapláss, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og hiti í gólfi. Í hjónaherbergi er stór innbyggður fataskápur og úr minna svefnherbergi er útgengt á svalir sem snúa í suðvestur. Baðherbergi, sem er nýuppgert, er með sturtu, góðu skápaplássi og handklæðaofni. Fatahengi er á gangi.
Í sameiginlegu þvottahúsi eru þvottavél og þurrkari sem tilheyra íbúðinni og húsinu tilheyrir hjóla- og vagnageymsla.
Íbúðin er frábærlega staðsett, á rólegum og fjölskylduvænum stað í göngufæri við alla helstu þjónustu, Klambratún og miðbæ Reykjavíkur.
Mögulegt er að leigja íbúðina með húsgögnum að hluta til ef þess er óskað.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 700.000 krInnflutningsverð
1.050.000 kr
Leigt út af Þórunn Arnardóttir