




Baughús 35
112 Reykjavík
Til leigu er afar bjart, rúmgott og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi. Boðið er upp á tímabundinn leigusamning til 12–18 mánaða og er leiguverðið viljandi haft umtalsvert lægra en gengur og gerist á markaðnum. Skilyrði fyrir því er að leigjandi taki að sér umsjón með tveimur köttum sem búa á heimilinu. Athugið að bílskúr fylgir ekki með í leigunni. Húsið skiptist í tvær hæðir þar sem á efri hæðinni er björt stofa með mjög hátt til lofts, glæsilegu útsýni og svölum, eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, hjónaherbergi, barnaherbergi og flísalagt baðherbergi með baðkari. Á neðri hæðinni er forstofa með stórum skáp, tvö góð svefnherbergi og nýlega endurnýjað baðherbergi og þvottahús með sturtu. Út af stigapalli á milli hæða er gengið út í glæsilegan suðurgarð með skjólgirðingu og sólpalli, og fyrir framan húsið er hellulagt plan með hitalögn. Staðsetningin er frábær en skóli og leikskóli eru í göngufæri ásamt því að stutt er í Spöngina, Egilshöll, sundlaug og golfvöll. Húsið hentar fullkomlega fyrir ábyrga fjölskyldu sem vantar 4 svefnherbergi tímabundið.
áætlum afhendingu um miðjan desember 2025 og verður í leigu meðan við munum búa erlendis vegna vinnu
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 6 leigutakar
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
390.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
30 des 2026
Leigutímabil
12 - 18 mánuðir
Fyrsti mánuður
390.000 kr
Tryggingafé
550.000 krInnflutningsverð
940.000 kr
Leigt út af Sigurður Egill Sigurðsson