




Klettamói 1
815 Þorlákshöfn
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is
Laus til leigu nýlegt og glæsilegt heimili að Klettamóa 1 í Þorlákshöfn Velkomin inn í fallegt og vel skipulagt 3ja herbergja 81,9 fm heimili að Klettarmóa 1 í Þorlákshöfn. Íbúðin er með sér inngangi af glæsilegu stigahúsi. Klettamói er mjög vel staðsett hverfi þar sem stutt er í þjónustu, leik, - og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði.
Nánari lýsing Gengið er inn í forstofu með fataskáp, 2 rúmgóð og björt herbergi eru í íbúð með fatakáp og gardínum. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu alrými íbúðar. Í eldhúsinu er gott skápapláss og innbyggður ísskápur fylgir íbúð, úr stofurýminu er svo gengið út á verönd. Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla 6,7fm fylgir íbúð. Uppþvottavél fylgir ekki íbúð. Fjöldi bílastæði er við húsið sem eru sameiginlegt, miðrými milli bygginga í götunni er svæði ætlað sem leiks- og útivistar.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 290.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Ísskápur
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
290.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
5 jún 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
290.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 870.000 krInnflutningsverð
1.160.000 kr

Leigt út af María