




Gerplustræti 5
270 Mosfellsbær
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is
Glæsileg íbúð til leigu að Gerplustræti 1-5, Helgafellslandinu, Mosfellsbæ. Íbúðin er á þriðju hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er fjögurra herbergja og er 108,3 fm, þar af er geymsla 12 fm. Íbúðin skiptist í, eldhús sem er samliggjandi stofunni og gengið er út á stórar svalir úr stofu, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þrjú svefnherbergi. Helgafellslandið er frábært hverfi, stutt í skóla og leikskóla, leikvelli og matvöruverslun. Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofuna á gang og er þar rúmgóður fataskápur. Á ganginum til vinstri er eitt svefnherbergi. Eldhús/stofa: Eldhúsið er opið og er samliggjandi stofunni, út frá stofu er hægt að ganga út á stórar svalir sem eru með fallegu útsýni. Baðherbergi: baðherbergið er flísalagt og er með sturtu. Upphengt klósett og gott skápapláss. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Svefnherbergi: Í íbúðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með fataskápum og stórum gluggum. Geymsla/bílastæði: Í sameign er 8,9 fm geymsla sem fylgir íbúðinni ásamt stæði í bílakjallara.
Leiguverð: 410.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign, ásamt stæði í bílakjallara. Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Hér má skoða íbúð í 3D: https://my.matterport.com/show/?m=BD6xhcEDmv5
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
410.000 kr
Laus frá
5 jún 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
410.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.230.000 krInnflutningsverð
1.640.000 kr

Leigt út af María